Dags: 07.05.2004 13:04

Þá er orðið ljóst hvaða lið komast áfram í undanúrslit á HM í Tékklandi. Í gær töpuðu heimamenn óvænt fyrir Bandaríkjamönnum í vítaskotskeppni eftir markalausa framlenginu. Þetta hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir Tékka sem var spáð góðu gengi. Svíar sigruðu síðan Letta nokkuð auðveldlega, 4-1, og Slóvakar sigruðu Svisslendinga 3-1 eftir að hafa lent undir 0-1 í fyrstu lotu. Kanada og Finnar áttust síðan við í hörkuviðureign þar sem Finnar komust í 2-0 en með harðfylgni náðu Kanadamenn að jafna 4-4 áður en venjulegur leiktími var úti. Í framlengingu tóku Kanadamenn öll vödin en þeir beinlínis elska framlengingu, enda hafa þeir unnið 9 af síðustu 12 framlengingum á HM. Það var ungstjarnan þeirra Dany Heatly sem kláraði leikinn fyrir þá og kom þeim í undanúrslitin. Þar mun Kanada mæta litla risanum í íshokkí, Slóvakíu, og Svíar Bandaríkjamönnum en báðir þessir leikir fara fram á sunnudag. Það er ómögulegt að spá í úrslit þessara leikja því dagsformið skiptir svo miklu máli, en alveg ljóst að mikið er lagt undir þar sem margar af helstu stjörnum NHL eru á meðal leikmanna.
Á meðfylgjandi mynd sést Dany Heatley fagna marki sínu í framlengingu.