Dags: 05.05.2004 23:44
Í gærkvöldi réðist endanlega hvaða lið mætast í undanúrslitum um Stanley bikarinn í NHL. Í Austurriðli hafði Tampa Bay þegar slegið út Montreal (4-0) en lykilhlutverkið í liði Tampa Bay gegndi Montrealbúinn Vincente Lecavalier sem var óstöðvandi gegn sínu gamla liði. Síðan tókst Philadelphia Flyers, með sitt gamaldags íshokkí, að slá út Toronto Maple Leafs (4-2) með marki í framlengingu, en bæði þessi lið eru skipuð mörgum gömlum brýnum og annáluðum harðjöxlum. Í Vesturriðli sló San Jose Sharks út Colorado Avalance (4-2) og, öllum að óvörum, tókst Calgary Flames að slá út stórveldi síðustu ára, Detroit Redwings (4-2). Árangur Calgary er mjög eftirtektarverður því þetta er sennilega eitt fátækasta liðið í deildinni, og stórstjarna hefur ekki spilað með þessu liði síðan Theoren Fleury var og hét. Það verða því Flyer og Tampa Bay sem mætast í úrslitum Austurriðils og sigurvegarinn úr þeirri rimmu mætir svo sigurvegaranum úr viðureign Calgary Flames og San Jose Sharks í Vesturriðli.