Fréttir

Total items: 1194

Viðurkenningar til foreldra

Dags: 02.05.2004 22:52


Stjórn íshokkídeildar SR ákvað að veita sérstakar viðurkenningar til foreldra og sjálfboðaliða sem hafa starfað sérstaklega mikið í þágu deildarinnar í vetur. Þessar viðurkenningar voru afhentar á árshátíð deildarinnar sl. föstudagskvöld. Eins og láta má nærri byggist þróttmikið starf deildarinnar fyrst og fremst á mikilli þátttöku sjálfboðaliða úr röðum foreldra, gulldrengja og meistaraflokks. Það reyndist t.d. einstaklega auðvelt fyrir stjórnina að leita til foreldra til að sinna ýmsum verkefnum á tímabilinu og fjölmargir foreldrar, nýjir og gamlir lögðu hönd á plóginn. Þessi vinna skiptir sköpum fyrir vöxt og starfsemi deildarinnar og viljum við þakka þeim fyrir. Eftirtaldir einstaklingar hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir mikið starf í vetur: Ágúst Ásgrímsson, leikmaður í Mfl Gísli Haraldsson, foreldri Sigurður Kr Björnsson, foreldri  Ragna Ragnarsdóttir og Guðlaugur Níelsson, foreldri Sigurleifur Ágústsson og Þórhildur Sverrisdóttir, foreldri