Dags: 01.05.2004 15:14
Heimasíða ÍSÍ hefur gert kunngjört að íshokkíleikmaður hafi fallið á lyfjaprófi sem tekið var í leik snemma í vor. Þessi leikmaður er ennfremur dómari í íshokkí sem kannski rennir enn frekari stoðum undir það að árverkni lyfjanefndar ÍSÍ skiptir miklu máli fyrir íþróttina. Annars segir í frétt ÍSÍ:
Dómstóll ÍSÍ hefur komið saman og tekið fyrir mál sem Lyfjaráð ÍSÍ höfðaði
gegn Snorra G. Sigurðarsyni, kt. 011169-3179, skráðum félaga í Birninum í
Reykjavík. Viðkomandi íþróttamaður var tekinn í lyfjapróf við reglubundið
lyfjaeftirlit í tengslum við keppni í ísknattleik þann 5 febrúar sl.
Dómsorð eru sem hér segir: Kærði, Snorri G. Sigurðsson, kt. 011169-3179,
er óhlutgengur til þátttöku í æfingum, keppnum og sýningum á vegum ÍSÍ,
sambandsaðila ÍSÍ eða félaga eða deilda inna þeirra í 6 mánuði frá 24. mars 2004
að telja. Kærða er óheimilt að gegna trúnaðarstörfum fyrir ÍSÍ, sambandsaðila
ÍSÍ eða félög eða deildir innan þeirra frá birtingu dómsins til 24. september
2004
Nánar má lesa um fréttina hér.