Dags: 28.04.2004 09:45

Þessa dagana fer fram í Tékklandi Heimsmeistarakeppni bestu liðanna í íshokkí en til leiks eru mætt m.a. Svíþjóð, Finnland, Rúsland, Bandaríkin, Kanada, Tékkland og Slóvakía. Síðan eru það lið "minni" spámanna einsog Kasakstan, Lettland, Austurríki, Þýskaland, Frakkland, Japan, Úkraína, Sviss og Danmörk. Þessum liðum er raðað í 4 riðla og komast 2 efstu liðin úr hverjum riðli í sjálfa úrslitakeppnina. Nú þegar hafa nokkrir leikir farið fram og engin óvænt úrslit litið dagsins ljóss. Svíar unnu m.a. Rússa 3-2 í hörðum og spennandi leik þar sem NHL stjarnan Ilya Kovalchuk gerði bæði mörk Rússa og Kanada bar sigurorð af Frökkum 3-0, í annars jöfnum leik. Danir unnu síðan Japani 4-3 en það verður fróðlegt að fylgjast með hvort Dönum takist að halda sér í hópi hinna bestu annað árið í röð. Upplýsingar um mótið má m.a. nálgast hér.