Fréttir

Total items: 1194

Nýir í stjórn íshokkídeildar

Dags: 25.04.2004 19:21


S.l. miðvikudag var haldinn aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur. Á fundinum var skýrsla formanns kynnt og endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram og samþykktir. Þrír stjórnarmenn í fráfarandi stjórn gáfu ekki kost á sér til endurskjörs en það voru þeir Sveinn Bjarki Sigurðsson (ritari), Guðmundur Finnbogason, Þorsteinn Sævarsson og Jónas Rafnsson. Við þökkum þeim kærlega fyrir vel unnin störf. Í stað þeirra voru kosin Helgi Valsson, Björg Vigfúsína Kjartansdóttir, Sævar Guðbergsson og Ásta Þórhallsdóttir. Endurkosnir voru Björn Örvar (formaður), Ólafur Gíslason (varaformaður), Birna Björnsdóttir (gjaldkeri) og Helgi Páll Þórisson.