Fréttir

Total items: 1194

SR - Comet á Björninn Cup

Dags: 23.04.2004 23:34


Í gærkvöldi hófst hið árlega Björninn Cup U18 í Egilshöllinni en í ár taka þátt lið SR, SA, Björninn, norska liðið Comet og Green Bay frá Bandaríkjunum. SR-ingar léku við Comet í kvöld og sigruðu þá í æsispennandi leik, 5-4. Ekki blés þó byrlega í upphafi leiks því Norðmennirnir skoruðu strax eftir rúmlega mínútu eftir mikil varnarmistök. Það tók SR drjúga stund að vakna til lífs en eftir að hafa náð rænunni léku þeir ágætlega, bæði í vörn og sókn. Svavar Rúnarsson jafnaði leikinn með miklu harðfylgni, bókstaflega mokaði pekkinum inn þegar aðrir voru farnir að bíða eftir uppkasti. Þetta mark kom á réttu augnabliki og fljótlega kom Gauti Þormóðsson SR yfir, og þá einum færri, með geysilega fallegu bakhandarskoti í fjærhornið. Norðmenn jöfnuðu en aftur skoraði Gauti,eftir frákast af langskoti frá Kára Valssyni, og kom SR í 3-2. Þórhallur Viðarsson jók muninn í 4-2, með úlnliðsskoti af löngu færi í vinkilinn. Norðmenn minnkuðu muninn í 4-3 en Gauti skoraði svo aftur eftir þversendingu frá Sindra Má Björnssyni - svolítill heppnisstimpill yfir þessu marki, en hvað um það. Norðmönnum tókst aftur að minnka munninn í eitt mark þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka. Staðan þá 5-4 og spennan í hámarki. Ekki tókst þeim að jafna, þrátt fyrir töluverða pressu á mark SR-inga og okkar menn fögnuðu góðum sigri. Í heild spilaði liðið mjög vel en af öðrum ólöstuðum átti Aron Levý Stefánsson, markvörður, frábæran leik - fullur sjálfstrausts, einbeittur allan leikinn og tók mörg skot úr dauðafærum. Svo má ekki gleyma stórgóðum leik Gauta sem var sífellt ógnandi og til vandræða fyrir Norðmennina. Sama má segja um bræðurna, þá Stein og Svavar, og svo Úlfar Andrésson, sem börðust vel og brutu upp spil Norðmanna hvað eftir annað. Í vörninni voru þeir Kári, og Þórhallur er líða tók á leikinn, öryggir og yfirvegaðir. Annars voru allir leikmenn SR að leika vel og sem ein liðsheild sem stundum hefur vantað í vetur. Þökk fyrir góða skemmtun!