Fréttir

Total items: 1194

Hasar í efri riðlum, met slegið í útafrekstri !

Dags: 19.04.2004 19:12


Gríðarlega óvænt úrslit urðu í Jaca á Spáni þegar Kína vann Kroatíu í annarri deild í Group A í heimsmeistarakeppni karla í íshokkí. Króatía komst 3-0 yfir þegar rúmlega 23 mínútur voru eftir af leiknumen þá náðu Kínverjar að skora sitt fyrsta mark. Við það mark hafa Kínverjar fengið óvænta von og fóru inní þriðja leikhluta, að því virðist, dýrvitlausir og náðu að jafna leikinn og einu marki betur. Jiang Hu skorði fyrsta markið í 3. leikhluta þegar 6 mínútur voru liðnar og Dahai Wang náði að jafna 3-3. Aðeins 13 sekúndum síðar náði Jiang Hu að skora sigurmarkið fyrir Kínverja. Þrátt fyrir góðan tíma náðu Króatar ekki að jafna leikinn. Kínverjar fara því í fyrstu deild en Lúxemburg fellur niður í aðra deild. 

Í Group B í annarri deild var heldur betur heitt í kolunum. Í úrslitaleiknum mættust Litháen og Serbía-Svartfjallaland. Þessar þjóðir hafa verið þekktar fyrir allt annað en frændsemi og þessi leikur var engin undantekning. Skemmst er frá því að segja að Litháen burstaði Serbíu 14-3, og þar af komu 7 mörk Litháen í síðasta leikhlutanum. Í þessum leik var slegið met í refsimínútum eða alls 502 mínútur.  Leikdómur og Stóridómur voru þar í töluverðum meirihluta eða alls 12 Stóridómar og 5 Leikdómar.

Litháen skaut alls 68 sinnum á mark Serba en fengu aðeins 18 skot á sig. Þess má geta að Gulli Markmaður SR fékk á sig rúmlega 70 skot í einum leikhluta frá Litháen þegar Ísland keppti við þá í Júgóslavíu 2002.
Litháen fer upp í fyrstu deild en Suður Afríka fellur niður í 3.deild.

Samkvæmt þessu mun Ísland lenda í deild með Króatíu, Ástralíu, Spáni, Ísrael, Serbíu, Kóreu, Búlgaríu og Nýja Sjálandi.