Dags: 17.04.2004 10:01
Í gærkvöldi hófst Reykjavíkurmótið barna- og unglinga í Laugardalnum, en nú eru það liðin Hrafnar, Fálkar, Ernir, Úlfar og Víkingar sem keppa. Búast má við jafnri og spennandi keppni milli þessara liða sem koma úr báðum Reykjavíkurfélögunum, þ.e. SR og Birninum. Auk leikjanna verður pökkakast, skotkeppni og lotterí. Allir leikmenn fá svo grillaða pylsu og svaladrykk, og kaffi og meðlæti verður á boðstólum í salnum fyrir foreldra og áhorfendur. Leikið verður til úrslita í hverjum flokki, gull, silfur og brons til allra þátttakenda. Góða helgi!