Dags: 17.04.2004 09:41
Í gærkvöldi fór fram þriðji leikurinn milli SA og SR í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki. Fyrstu tvo leikina hafði SA unnið og dugði því að vinna þriðja leikinn til að hampa titlinum. Og þetta tókst þeim Akureyringum; þeir unnu góðan sigur, 6 - 1, á SR-ingum í þessum leik. Þar með er keppnistímabili í karlaflokki lokið og enn eru það Akureyringarnir sem sigra í meistaraflokkinum. Úrslitin í þessum leik gefa kannski ekki alveg rétta mynd af gangi leiksins því lengst af var leikurinn frekar jafn, SR sköpuðu sér mörg færi, börðust vel og sýndu áræðni. En ekkert gekk þegar kom að markaskorun, á meðan SA menn nýttu vel sín færi. Í því lá jkannski gæfumunurinn í þessum leik. Í vetur hafa Akureyringar spilað mjög vel, sýnt mikinn stöðugleika og verið áberandi besta liðið. Grunnurinn að góðu gengi þeirra liggur kannski fyrst og fremst í þremur, mjög góðum erlendum leikmönnum sem SA fékk til landsins til að að spila með liðinu. Þeir geta alltaf tekið af skarið þegar á þarf að halda - hinir mörgu landsliðsmenn SR-inga ná ekki einu sinni að vega það upp. Auk þess eru Akureyringar með nokkra velspilandi, sterka stráka og reynslumikla heimamenn sem ávallt skila sýnu hlutverki. Samkvæmt fréttum munu tveir þeirra, Sigurður Sigurðsson og Rúnar Rúnarsson, ekki spila með Akureyringum næsta vetur og er verulegur sjónarsviptir af þeim. SR-ingar hafa í vetur oft sýnt góð tilþrif, átt marga góða leiki en ávallt vantað herslumunninn gegn Akureyringum. Það hlýtur að koma að því að sunnanmenn fari alla leið og vinni titilinn, sérstaklega ef haft er í huga öflugt barna- og unglingastarf þessara félaga. Við óskum Akureyringum til hamingju með verðskuldaðan Íslandsmeistaratitil.