Fréttir

Total items: 1194

Reykjavíkurmót barna í íshokkí

Dags: 14.04.2004 15:06


Föstudaginn 16.apríl  hefst í Laugardalnum Reykjavíkurmót barna- og unglinga í íshokkí sem íshokkídeild SR skipuleggur. Upphaflega átti þetta mót að vera hluti af mótaröð sem félli undir Íslandsmót en vegna fjarveru Akureyringa, sem tilkynntu að þeir myndu ekki senda neitt lið á mótið, riðlaðist það skipulag verulega. Til að valda ekki frekari vonbrigðum hjá hinum ungu leikmönnum sem þyrstir í að spila íshokkí, var ákveðið að halda mótið en þá með töluvert nýju sniði. Öllum leikmönnum í Birninum og SR verður þannig raðað saman í blönduð, jöfn lið sem heyja innbyrðis keppni um sigur í hverjum flokki. Þannig verða leikmenn frá báðum félögum í sama liðinu og í hverjum flokki keppa allir við alla. Liðin sem taka þátt eru: Fálkar, Ernir, Hrafnar, Úlfar og Víkingar. Tveir liðstjórar verða fyrir hverju liði, einn úr sitthvoru félaginu. Skipulag á keppnisfyrirkomulagi er í höndum Peters Bolin þjálfara SR, en honum til aðstoðar er Sergei Zak úr Birninum. Foreldrar og stjórn íshokkídeildar SR sjá svo um aðra þætti mótsins. Vonumst við til að foreldrar fjölmenni í Laugardalinn og fylgist með spennandi móti en fyrsti leikurinn er á föstudagskvöldið kl. 20:15 en þá mæta Ernir Víkingum í 4. flokki. Síðasti leikurinn er svo kl. 11:40 á sunnudag en þá mæta Ernir Hröfnum í 5. flokki. Veitt verða verðlaun í öllum flokkum fyrir fyrsta og annað sætið, en svo fá allir verðlaun fyrir þátttöku. Ef vel tekst til með þetta fyrirkomulag er aldrei að vita nema að það verði oftar notað í barnamótum. Auk leikjanna verða ýmsar uppákomur einsog lotterí, skotkeppni, pökka-kast, og vegleg verðlaun í boði, en þátttaka er gegn vægu gjaldi. Salurinn opinn allan tímann með heitt á könnunni. Góða skemmtun!