Dags: 06.04.2004 19:16
Í dag eru síðustu æfingarnar fyrir páska en svo hefst alvaran aftur strax á þriðjudegi eftir páska með æfingum skv. stundatöflu. Það verður hins vegar lítið frí hjá meistaraflokki um páskana því hann spilar fyrsta leik sinn í Úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn laugardaginn 10. apríl á Akureyri, og síðan annan í páskum hér í Laugardalnum. Þeir sem eru heima við um páskana ættu því að fjölmenna í Laugardalinn en sá leikur hefst kl. 18:00. Gleðilega páska.