Dags: 03.04.2004 19:55
Í dag lauk 3. riðli á heimsmeistaramóti U18 liða í Ungverjalandi en Ísland mætti þá Spáni í sínum síðasta leik. Fyrir þennan leik var ljóst að Ísland myndi halda sæti sínu í riðlinum því Belgía, sem gátu farið fram úr Íslandi að stigum, tapaði stórt fyrir Hollendingum í sinum síðasta leik. Okkar menn byrjuðu mjög vel, komust í 4-2 og leiddu leikinn alveg fram í miðjan annan leikhluta. Þá tókst Spánverjum að jafna leikinn 5-5 og eftir að Patrick okkar Ericsson fékk leikdóm, sigu þeir síðan fram úr or skoruðu síðustu 4 mörkum leiksins. Á þessum kafla virtist ekkert ganga upp hjá okkar mönnum, tíðir brottrekstrar og leikdómar. Þessi úrslit breyta því þó ekki að strákarnir stóðu sig frábærlega vel og voru Íslandi til sóma. Á síðasta ári unnu þeir sig upp í þessa deild og það verður að teljast til tíðinda að geta náð að halda sér í þessum riðli. Með smáheppni hefðu þeir jafnvel geta ná enn betri úrslitum og jafnvel unnið lið einsog Spán. Með þessu áframhaldi munu þeir færast enn ofar í þessum riðli í næstu keppni. Það má ekki gleyma að minnast á þátt Sergei Zaks þjálfara í þessum árangri en hann náði að undirbúa strákana mjög vel fyrir þetta mót með þrotlausum æfingum og skipulagi sem skilaði sér á þessu móti. Þótt einstaka leikur, einsog gegn Úkraínu sem vann þennan riðil næsta auðveldlega, hafi tapast stórt verður að hafa í huga að þjóðir einsog Úkraína eru firnasterkar. Nýlega töpuðu þeir víst aðeins 3-2 fyrir Rússum - þokkalegt að mæta slíku liði! Og gegn þjóðum einsog Ungverjum, sem einnig eru mjög sterkir, stóðu okkar menn lengi vel í þeim. Hægt er að sjá lokastöðuna í mótinu, refsimínútur og stig leikmanna á vef Alþjóðasambandsins.