Dags: 30.03.2004 19:27
Sl. laugardagskvöld var foreldrum iðkenda í íshokkíi boðið á skautakvöld í Laugardalnum en Jónas Rafn, fyrrum leikmaður SR, sá um að skipuleggja kvöldið. Nokkuð góð þátttaka var en á milli 40 og 50 foreldrar mættu galvaskir á ísinn, tilbúnir til að prófa það sem börnum þeirra þykir svo skemmtilegt. Ísnum var skipt upp fyrir almenna skautaiðkun og svo íshokkí, og var leikið stíft í tvo tíma. Kvöldið gekk mjög vel fyrir sig og foreldrar almennt mjög ánægðir. Ljóst er að áhugi er fyrir að slík skautakvöld fyrir foreldra verði haldin a.m.k. tvisvar sinnum á vetri og þá auglýst vel og rækilega.