Fréttir

Total items: 1194

U-18: Ísland - Holland; 1-11

Dags: 29.03.2004 18:55


Íslendingar biðu lægri hlut fyrir Hollendingum í dag 1-11. Daniel Ericsson skoraði eina mark Íslands í leiknum og fyrsta mark Íslands þegar tæpar 2 mínútur voru til leiksloka. Okkar menn fóru illa af stað og Hollendingar gengu á lagið og skoruðu 6 mörk í fyrsta leikhluta. í öðrum leikhluta komust strákarnir okkar betur inn í leikinn en þessi leikhluti tapaðist 1-0. í síðasta leikhluta var jafnræði framan af með liðunum en Hollendingarnir reyndust svo sterkari og unnu þennan leikhluta 4-1. Sjá nánar á www.ihi.is og á www.iihf.com