Dags: 21.03.2004 16:59
Í gær áttust við Mexico og Armenia í skautahöllinni í Laugardal. Fyrirfram var búist við auðveldum sigri Mexicóa þar sem Armenar hafa aðeins stundað þessa íþrótt í öfrá ár og eru með ungt og reynslulítið lið. Leikurinn fór nánast alfarið fram á vallarhelmingi Armena þar sem Mexicóar sóttu fast að marki þeirra. Mexicóar spiluðu snertingalítið hokký, enda engin þörf á tæklingum í leik sem þessum, létu pökkinn ganga sín á milli og endaði það oft með mörkum eða glæsilegum markvörslum Armenska markvarðarins. Þrátt fyrir að hafa þurft að liggja í vörn nær allan leikinn áttu Armenar fyrsta færi leiksins, þar var á ferð Hovnan Markosyan, sterkasti sóknarmaður Armena, hann átti einnig tvö dauðafæri í lok leiksins en markvörður Mexicóa varði þau skot sem Armenum tókst að hleypa af. Armensku varnarmennirnir eiga einnig hrós skilið fyrir baráttu sína, þeim tókst oft að stöðva hraðar sóknir Mexicóa og hættu aldrei að berjast.
Í liði Mexicóa var leikmaður nr. 9, Roberto Sanchez, atkvæðamestur, með 6 mörk og ljóst er að Íslendingar verða að hafa góðar gætur á honum í leik Íslands og Mexico í kvöld, hann var kosinn sterkasti maður Mexicóa í þessum leik en í liði Armena var það leikmaður nr. 10, Samvel Zakharyan.
Ekki var mikið um áhorfendur á þessum leik en þeir sem mættu í skautahöllina skemmtu sér vel og þóttu stíll og tilþrif Armenska markvarðarins sérstaklega athyglisverð og eru sjálfsagt flestir sammála um að hann hafi verið maður leiksins.