Dags: 18.03.2004 14:18
Í gærkvöldi var þriðji leikurinn á HM er Armenar mættu Írum. Þetta var annar leikur Íranna, sem töpuðu 8-3 gegn Mexíkóum í fyrsta leik mótsins, en fyrsti leikur Armena. Enda þótt bæði þessi lið séu að keppa í fyrsta sinn á HM var hlutskipti þeirra ólíkt í þessum leik. Írarnir voru í mun betri æfingu og þjálfun en leikmenn Armeníu sem virtust, margir hverjir, eiga töluvert í land með að ná góðum tökum á íþróttinni. Það voru þó Armenar er skoruðu fyrsta mark leiksins en á 9. mín. skoraði Dmitri Khachatryan ágætt mark með lúmsku skoti. Markið kom nokkuð flatt upp á Írana sem voru lengi í gang eftir þetta. Hægt og bítandi tóku þeir þó öll völd á ísnum og skoruðu hvert markið á fætur öðru, þrátt fyrir góða markvörslu hjá Armenum, gott skipulag í vörninni og stórt hjarta. Þegar uppi var staðið höfðu Írarnir skorað 15 mörk og Armenarnir fyrir löngu búnir að játa sig sigraða. Þessi leikur var því ekki spennandi en þó athyglisverður fyrir þær sakir að þarna voru tvær nýjar þjóðir að hasla sér völl í íshokkíheiminum, rétt einsog Íslendingar fyrir 6- 8 árum. Um 150 áhorfendur urðu vitni að því. Búast má þó við að róðurinn eigi eftir að þyngjast verulega hjá þessum liðum, sérstaklega hjá Armenum, er líða tekur á mótið.
Hjá Írum var William Morrison einna bestur, glúrinn og teknískur leikmaður í annars nokkuð jöfnu liði. Hjá Armenum var markamaðurinn þeirra, Mher Hovhanisyan, þeirra sterkasti leikmaður, varði oft mjög vel og fórnaði sér, alls óhræddur, fyrir skauta Íranna. Ennfremur vakti athygli 16 ára leikmaður þeirra, Hovnan Markosyan, fyrir góða tækni.
Nánar um tölfræði leiksins má lesa hér.