Dags: 14.03.2004 00:36
Um helgina léku SR-ingar tvo leiki við SA í Íslandsmótinu í öðrum flokki en báðir þessir leikir fóru fram á Akureyri. Á föstudagskvöldið tapaði SR 6-7 í leik sem var jafn og spennandi allan tímann en í seinni leiknum hrundi spil, og þá sérstaklega varnarleikur okkar manna þegar langt var liðið á leikinn. Akureyringarnir gengu á lagið og unnu auðveldan sigur, 10-5. Þessi úrslit eru nokkur vonbrigði fyrir okkar stráka því oft hafa þeir leikið mjög vel í vetur. En ekki er öll nótt úti enn því þessi lið eiga eftir að mætast tvsivar sinnum í apríl, og þá í Laugardalnum. Skautafélags Akureyrar tók á móti SR-ingum um helgina í tvígang. Fyrri leikurinn fór fram á föstudagskvöld og var frá fyrstu mínútu mjög skemmtilegur. SA bar sigur úr býtum með einu marki, 7 mörk gegn 6. Það má til gamans geta þess að 13 leikmenn skoruðu þessi 13 mörk í leiknum og greinilegt að mikil og góð breidd er í báðum liðum. Föstudagur SR: Gauti Þormóðsson, 1/3, Úlfar Andrésson 1/1, Steinn Rúnarsson 1/0, Kári Valsson 1/0, Svavar Rúnarsson 1/0, Sindri Már Björnsson 1/0, Þorsteinn Björnsson 0/1. SA: Guðmundur Guðmundsson 1/1, Stefán Þorleifsson 1/1, Birkir Árnason 1/1, Arnþór Bjarnason 1/1, Einar Valentine 1/1, Steinar Grettisson 1/0, Leonard Jóhannsson 1/0, Aron Böðvarsson 0/1, Jón Ingi Hallgrímsson 0/1. Laugardagur SR: Svavar Rúnarsson 2/0, Úlfar Andrésson 1/1, Steinar Páll Veigarsson 1/0, Þorsteinn Björnsson 1/0, Svanur Þórisson 0/1, Þórhallur Viðarsson 0/1 SA: Arnþór Bjarnason 2/2, Steinar Grettisson 2/2, Jón Ingi Hallgrímsson1/2, Einar Valentine 3/0, Birkir Árnason 1/1, David Ryan 1/0, Kristján Eldjárn 0/1.