Fréttir

Total items: 1194

Landsbankamótið hafið

Dags: 12.03.2004 09:09


Landsbankamótið í Egilshöllinni hófst að fullum krafti í gærkvöldi með leikjum í 4. flokki, en þetta mót er hluti af Íslandsmótinu. Í dag heldur mótið áfram og stendur langt fram á kvöld. Á laugardaginn hefst fyrsti leikurinn kl. 8:00 og sá síðasti endar 23:20. Mótinu lýkur svo á sunnudag kl. 12:45. Þetta er ströng dagskrá en liðin eru mörg og leikirnir því margir. Þannig sendir SR t.d. 3 lið í 4. og 5. flokki. En áhuginn hjá leikmönnum er ósvikinn og gaman að fylgjast með framförunum og eldmóðinum.