Fréttir

Total items: 1194

Skautaskóli í Svíþjóð; kynning í kvöld

Dags: 08.03.2004 12:51


Í kvöld kl. 20:00 verður kynning fyrir foreldra á skautaskólanum í Landskrona í Svíþjóð, en á síðasta ári sóttu nokkrir SR-ingar þennan skóla. Á kynninguna mætir m.a. Peter Bolin þjálfari og Þormóður Þormóðsson, foreldri, og segja frá sinni reynslu af þessum skóla.
Leikmenn úr öllum flokkum eru gjaldgengir í þennan skóla, á meðan pláss er fyrir hendi. Kynningin fer fram í fundarsal Skautahallarinnar í Laugardal.