Dags: 08.03.2004 12:51
Á laugardaginn var kepptu SR og SA í Íslandsmeistaramóti karla í íshokkí en
þetta var síðasti innbyrðisleikur þessara liða fyrir Úrslitakeppnina sem verður
í byrjun apríl. Leikurinn fór rólega af stað en það var Jason Selkirk sem
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir SR. Staðan var því orðinn 1-0 SR í vil. Sú
staða hélst nokkuð lengi eða þar til í 3 lotu. Jason þurfti síðan að
yfirgefa leikinn þar sem hann fékk óvart pökkinn í andlitið. Þetta kom nokkuð
niður á spili SR-inga og Akureyringarnir gengu á lagið.
Í síðustu
lotunni fengu SA menn nokkur færi sem þeir nýttu sér vel og komust að lokum
yfir í enda leiks. Lokastaða 3-2 SA í vil.
SR-ingar spiluðu vel framan af
og áttu þeir töluvert betri leik heldur en undanfarna leiki. Pökkurinn náði að
ganga á milli manna þó að á tímabili hafi sumir hangið einum og lengi á honum,
glutrað þannig niður hugsanlegum færum, eða hleypt SA mönnum í færi. Þetta
þarf að laga fyrir Úrslitakeppnina. Annars var stemningin góð hjá báðum liðum,
leikmenn kannski frekar með hugann við landsliðsæfingar en bæði U18
og karlalandsliðið voru með æfingabúðir um þessa helgi.
Svo má geta þess að á sunnudaginn lék Björninn við SA í karlaflokki en
þessi leikur fór fram í Egilshöll. Norðanmenn unnu leikinn 6-4.