Fréttir

Total items: 1194

Nýtt félagsmerki SR!

Dags: 03.03.2004 14:35


Nú eru tímamót hjá Skautafélagi Reykjavíkur því til stendur að efna til samkeppni um nýtt félagsmerki fyrir SR. Fram til þessa hafa bæði Íshokkídeildin og Listskautadeildin haft sitt eigið merki en nú þykir ástæða til að hafa eitt sameiginlegt merki fyrir félagið, einsog hjá flestum íþróttafélögum. 
Nýlega tóku t.a.m. Björninn í notkun nýtt félagsmerki fyrir félagið og núna er röðin komin að okkur. Sá háttur verður hafður á að öllum félagsmönnum og iðkendum gefst kostur á að taka þátt í samkeppninni. Íshokkídeildin mun þó áfram halda í sitt gamla merki á búningum sínum og þar sem við á.
Annars hljóðar auglýsingin svona:

"Stjórn SR hefur ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um nýtt félagsmerki Skautafélags Reykjavíkur. Allir félagsmenn og iðkendur hvattir til að taka þátt Félagsmerkið má gjarnan endurspegla hina löngu sögu félagsins (sjá “Saga félagsins” á www.skautafelag.is undir hnappinum “Félagið”). Eina skilyrðið sem sett er þó við hönnunina er að halda litunum sem hafa verið einkennandi fyrir félagið, (fánalitirnir; blár, rauður og hvítur), og að félagsmerkið geti hentað báðum deildum félagsins. Þeir sem hafa góðar hugmyndir eru vinsamlega beðnir um að skila þeim í kassa merkta “hugmyndasamkeppni” sem eru staðsettir inn á skrifstofum beggja deilda.
Nafn og símanúmer þátttakanda skal fylgja með í lokuðu umslagi. Hugmyndum skal skila inn fyrir 1.apríl n.k og mun sérstök dómnefnd (formaður SR og einn fulltrúi úr hvorri deild) velja þrjár bestu hugmyndirnar .
Dómnefndin áskilur sér þó rétt til að hafna öllum innsendum hugmyndum. Kosið verður síðan um nýtt félagsmerki á aðalfundi félagsins í vor. Veitt verða 20 þúsund króna verðlaun fyrir félagsmerki sem valið verður".

Svo vonum við bara að undirtektirnar verði góðar.