Fréttir

Total items: 1194

Góður sigur hjá 2. flokki SR

Dags: 01.03.2004 19:48


Í gærkvöldi léku SR-ingar við Björninn í 2. flokki í Íslandsmótinu en þessi leikur fór fram á heimavelli Bjarnarins, í Egilshöllinni. Það er skemmst frá því að segja að SR-ingar léku við hvern sinn fingur og unnu góðan sigur, 7-3. SR byrjaði vel og skoraði fyrstu tvö mörkin. Björninn jafnaði síðan 2-2 og komst svo í 3-2. Eftir heflun í “hálfleik” tóku SR-ingar sig á og beinlínis yfirspiluðu Bjarnarmennina. Baráttan efldist og leikmenn fóru að spila stöðurnar sínar í vörninni. Allir börðust mjög vel í “fram-pressunni” (forcheck) sem var fyrst og fremst lykillinn að sigrinum. Og ekki spillti fyrir góð markvarslan hjá Aroni. Svavar Rúnarsson skoraði 3 mörk, Gauti Þormóðsson 2, Úlfar Andrésson 1 og Hafsteinn Hjörleifsson 1 mark. Að þessu sinni stýrðu Guðmundur Björgvinsson og Ágúst Ásgrímsson liðinu af bekknum, og eiga þeir heiður skilinn.