Dags: 29.02.2004 20:26
Í dag áttust við SR og Björninn í 4. flokki en B-liðin léku í Egilshöll en A-liðin í Laugardalshöll. Báðir leikirnir voru mjög skemmtilegir og greinilegt að miklar framfarir hafa átt sér stað hjá þessum leikmönnum. B-lið SR-inga er að stórum hluta skipað nýliðum sem hafa komið úr Skautaskólanum. Þeir hafa sýnt miklar framfarir í vetur, enda áhuginn mikill. A-liðið hefur staðið í ströngu í allan vetur, enda 4A hjá Birninum mjög sterkur, en þeir hafa átt marga jafna og góða leiki í vetur við Bjarnarmenn. Það verður gaman að fylgjast með þessum liðum á Íslandsmótinu.