Dags: 22.02.2004 18:38
Í gær léku SR-ingar við Akureyringa í Íslandsmóti karla en þessi leikur fór fram á Akureyri. Það er skemmst frá því að segja að norðanmenn gjörsamlega völtuðu yfir SR-inga og unnu auðveldan sigur, 9-2. Sunnanmenn voru allan tímann áhugalausir og kraftlitlir, á meðan norðanmenn spiluðu sitt hokkí, einsog venjulega, og kláruðu leikinn. Hvað veldur þessu kraftleysi er erfitt að segja en sigurviljinn er einfaldlega ekki fyrir hendi. Nú hafa SR-ingar einn og hálfan mánuð til að rífa sig upp úr þessari lægð en Úrslitakeppnin, milli SR og SA, hefst 6. apríl. Fram að þeim tíma er Heimsmeistaramótið og einn enn leikur við SA í Laugardalnum. Þar viljum við sjá breytt lið með vígtennur.