Dags: 18.02.2004 17:44

Nýlega var birtur listi yfir þá ungu leikmenn sem útsendarar á vegum NHL liðanna telja hvað efnilegasta og eru gjaldgengir í nýliðavalið (Entry Draft) sem fram fer í sumar. Útsendararnir koma saman og berja saman slíka lista sem NHL liðin nota síðan til hliðsjónar er þau velja efnilega leikmenn í nýliðavalinu. Flestar stjörnurnar í NHL hafa komið í gegnum slíkt val enda þótt frægar undantekningar séu til, einsog með Gretzky. Síðan eru mörg dæmi um leikmenn sem urðu aldrei annað en efnilegir, voru jafnvel flokkaðir í efsta sæti en náðu aldrei fótfestu í NHL. Þetta val er því líka happdrætti. Yfirleitt eiga þó leikmennirnir í efstu sætunum á þessum lista framtíðina fyrir sér í NHL. Í ár er það talinn engin spurning að Alexander Ovechkin frá Rússlandi verði valinn fyrstur. Hann er talinn dæmigerður “power forward”, með góð skot og mjög þroskaður, sem muni ná mjög langt í NHL. Hvort þessi spá muni rætast verður tíminn að leiða í ljós en listinn yfir evrópska leikmenn (hér) og norður ameríska leikmenn (hér) er ávallt fróðlegur.