Dags: 13.02.2004 14:08

Fram í næstu viku verður Peter þjálfari í fríi í Svíþjóð. Á meðan munu
aðstoðarþjálfarar sjá um alla þjálfun þannig að æfingar falli ekki niður. En það
eru fleiri á leiðinni út. Þeir Gauti Þormóðsson og Þórhallur Viðarsson, báðir úr
2. flokki, var boðið að æfa með Malmö Redhawks í nokkra daga og fara þeir utan
um helgina. Þetta er gott tækifæri fyrir þessa leikmenn til að fá að æfa með
góðum liðum og auka við reynslubankann. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem
SR-ingum er boðið til æfinga hjá erlendum liðum, en fyrir skemmstu dvöldu þeir
Úlfar Andrésson og Þorsteinn Björnsson, báðir úr 3. flokki, við æfingar í
vikutíma í boði Gentofte og Rödovre í Kaupmannahöfn. Þetta er ánægjuleg þróun og
víst að enn fleiri leikmenn eiga eftir að fá slík tækifæri, enda margir
efnilegir leikmenn að koma upp.
» Vefsíða Malmö
Redhawks