Fréttir

Total items: 1194

Skyldusigur

Dags: 11.02.2004 11:21


Í gærkvöldi áttust við í Egilshöll öðru sinni á skömmum tíma SR og Björninn í karlaflokki en síðasta leikinn vann SR örugglega 12-5. Því mátti búast við að Björninn hefði engan áhuga á að endurtaka þau afhroð. Leikurinn var enda frekar jafn og hraður á köflum en ekki sami krafturinn í SR-ingum og í síðasta leik gegn Birninum. Nokkuð var um smáskelli milli leikmanna en þó ekkert sem orð er á gerandi. Dómari leiksins var þó nokkuð flautuglaður en bæði liðin fengu jafnmargar brottvísanir, eða samtals 14. SR spilaði á stundum með 3 leikmenn en Björninn náði aldrei að nýta sér þann liðsmun þegar á reyndi. Jafnt var á flestum tölum lungann úr leiknum en SR kláraði leikinn, einsog til stóð, og sigraði 6-5. 

Richard Tahtinen átti stórgóðan leik og skoraði m.a. glæsilegt mark frá bláu með þrumuskoti. Hann vann mjög vel allan leikinn og það verður gaman að sjá hann spila þegar hann verður kominn í fullt form, eftir erfið hnémeiðsli er hann hlaut á síðasta tímabili. Gunnlaugur Björnsson markmaður verður öruggari í markinu með hverjum leik og þrátt fyrir mörkin 5 er ekki hægt að saka hann um þau mörk. Ingvar Þór Jónsson átti að venju góðan leik, spilaði af öryggi í vörninni og leiddi sína menn til sigurs. Að öðru leyti var SR liðið nokkuð jafnt. Elvar Jónsteinsson úr SR skarst í andliti eftir kylfu frá Sergei Zak og þurfti hann að láta sauma nokkur spor eftir leikinn, ekki alvarlegt samt.   SR hefur lokið öllum leikjum sínum í Íslandsmótinu gegn Birninum, en SR vann 5 leiki gegn Birninum og gerði 1 jafntefli. Með þessum úrslitum er það ljóst að það verða SR og SA sem koma til með að spila í úrslitakeppninni sem hefst  í apríl. SR á þó eftir að spila tvo leiki gegn SA áður en að úrslitakeppninni kemur en þeir leikir eru eftirfarandi:  

Akureyri 21/2 SA - SR kl 17.00.

Laugardalur    6/3   SR - SA kl 18.30