Fréttir

Total items: 1194

Ómakleg umfjöllun á Stöð 2

Dags: 07.02.2004 12:56


Í þættinum "Ísland í dag" á Stöð 2 í gærkvöldi var umfjöllun um leik SR og Bjarnarins frá því á fimmtudagskvöldið. Ekki var þetta umfjöllun um leikinn í heild sinni, enda íslenskir sjónvarpsmenn ekki vanir að gera íshokkíleikjum nein sérstök skil, heldur var áhugi þeirra fyrst og fremst fyrir því að sýna nokkur atvik úr þessum leik sem gætu gert þáttinn þeirra meira spennandi í harðri samkeppni um áhorf. Og er til betri leið en að draga allt úr samhengi og fella stóra dóma, enda gat sjónvarpsmaðurinn, sem ekki er íþróttafréttamaður, varla haldið aftur af gleði sinni er hann "fjallaði" um þessi mál. Það kemur honum kannski á óvart en íshokkíunnendur á Íslandi hafa engan áhuga á þeirri hegðun er einstaka leikmenn gerðu sig seka um í þessum leik enda munu þeir hljóta þunga refsingu skv. þeim reglur sem gilda. Þessi atvik minna okkur þó á að íshokkíhreyfingin verður sífellt að vera á varðbergi gagnvart hegðun sem þessari, hér eftir sem hingað til. Það er vilji allra og m.a. þess vegna er þessi íþrótt í slíkum uppgangi hér á landi. Til að gæta allrar sanngirni hefði umræddur sjónvarpsmaður líka geta fjallað um hversu gott íshokkí var spilað í annarri og þriðju lotu, leikurinn bráðskemmtilegur, þar sem oft brá fyrir einu besta spili sem sést hefur í langan tíma. Þeir hefðu líka getað fjallað um að þrátt fyrir miklar væringar í fyrstu lotu voru leikmenn beggja liða tilbúnir til að leggja það til hliðar og spila íshokkí það sem eftir var leiksins. Þeir hefðu líka geta fjallað um það að þrátt fyrir hörku leiksins, mikinn hraða og harðar ákeyrslur, eru meiðsli ekki algeng í íshokkí. Hjá SR hefur t.a.m. aðeins einn leikmaður í karlaflokki meiðst í vetur; getur t.d. knattspyrnulið eða handboltalið í meistaraflokki státað sig af því. Svo hefði verið í lagi að segja frá úrslitum leiksins og kannski sýnt nokkur snilldarmörk sem voru skoruð. En það stóð aldrei til! Þessi umfjöllun var einfaldlega ósanngjörn.