Fréttir

Total items: 1194

SR lyftir sér á hærra plan! Aukagrein !

Dags: 06.02.2004 19:48


margarkylfur.jpg

Leikurinn í gærkvöldi var skemmtilegur fyrir margra hluta sakir, þó sérstaklega megi nefna góðan liðsanda og stemmningu innan SR liðsins.
Menn voru mættir í Egilshöll ekki bara til spila íshokkí heldur líka til þess að skemmta sér saman.  Sigurinn fór aldrei úr huga manna og leikmenn stilltir inná það strax í byrjun leiks.  Fyrir upphitun var  Steinari Páli Veigarssyni óskað til hamingju með afmælið (sem er í dag) og sungu fyrir hann léttan afmælissöng með tilheyrandi lófataki.
Til að fullkomna daginn þá var afmælisbarnið tekið í lyfjapróf að leik loknum ásamt þeim Jason Selkirk og Árna Valda Bernhöft.
Úlfar Jón Andréson opnaði sinn markareikning í meistaraflokki með ágætu marki eftir stoðsendingu frá Richard Tatinen.
Meistaraflokkurinn sýndi í gærkvöldi hið sanna SR-eðli og SR-kraft.
Nú bíða menn spenntir eftir næsta leik sem verður næsta þriðjudag, og þá aftur við Björninn. Annað kvöld munu SA heimsækja Bjarnarmenn í Egilshöllina og verður gaman að sjá hvernig sú viðureign mun fara.
Byrjar sá leikur kl.18:00.