Dags: 31.01.2004 17:06

Íslensku landsliðin eru komin með vef þar sem verður eingöngu fjallað um gengi landsliða í hinum ýmsu greinum. Fyrst allra landsliða sem fara inn á þennan vef eru landsliðin í íshokkí. Á þessum vef verða vikulegir pistlar um framgang æfinga og móta sem landsliðin taka þátt í og einnig er stefnt á að vera með einstaka greinar frá hinum ýmsu aðilum.
Enn sem komið er verður vefurinn á Íslensku og Ensku en í framtíðinni er áætlað að vera með fleiri tungumál. Kíkið á vefinn www.teamiceland.net