Dags: 27.01.2004 18:02

Um helgina næstu verða fyrstu landsliðsæfingabúðir fyrir HM sem haldið verður í Skautahöllinni í Laugardal í marsmánuði. Fyrir þá sem eiga að mæta á þessar æfingar þá er fyrsta æfing á föstudagskvöldið kl.21:00 til 22:00, en mæting er kl.20:00. Svo fá menn að sofa örlítið en þurfa síðan að mæta á æfingu klukkan 08:00 á laugardagsmorgun.
Myndarlegur hópur tekur þátt í þessum æfingabúðum að þessu sinni og á hann örugglega eftir að breytast eitthvað þegar fram líða stundir.