Fréttir

Total items: 1194

SA - Björninn 10 - 7.

Dags: 24.01.2004 21:34


Í kvöld áttust við SA og Björninn í leik norður á Akureyri.  Bæði lið voru mætt ákveðin til leiks og ekki bar á öðru en að  skemmtilegur leikur væri í vændum.  Leikurinn spilaðist vel og tókust liðin mikið á. Fyrst mark leiksins skoraði Clark McCormik eftir stoðsendingu frá Jóni Gísla sem var nýkominn frá sólabakstri frá Tælandi.  Bjarnarmenn áttu marga góða spretti og voru þeir á tímabili að ná valdi á leiknum en SA menn misstu aldrei tökin þrátt fyrir mörg góð tilþrif Bjarnarmanna.
Loturnar fóru svo: 3-2,2-2,5-3.  Jón Gíslason, Arnþór Bjarnason, Rúnar Rúnarsson og Clark McCormik voru atkvæðamestir í liði SA og Sergei Zak, Stefán Hrafsson og Daði Örn Heimisson voru atkvæðamestir hjá liði Bjarnarins. 
Það er nokkuð ljóst að það eru margir góðir leikmenn í báðum liðum og verður gamam að sjá leikmenn einsog Einar Valentine sem skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark í kvöld með aðstoð frá Kristjáni Kristjánssyni og leikmann einsog Kolbein Sveinbjarnarson en verða þessir leikmenn að teljast til þeirra yngstu í báðum liðum.

Refsingar:
SA: 4 mín
Björninn: 4 mín.

Dómari leiksins: Helgi Páll Þórisson

Um næstu helgi munu þessi lið mætast aftur á sama tíma.