Fréttir

Total items: 1194

SR - SA í 3.flokki

Dags: 19.01.2004 10:03


Á laugardagskvöldið lék SR við SA í Íslandsmótinu í 3. flokki, en þessi leikur fór fram strax að leik meistaraflokks loknum. Leikurinn var allan tímann nokkuð spennandi, enda þótt SR hafi kannski haft undirtökin mest allan tímann. Leikurinn, sem endaði 4 – 3 fyrir SR, var nokkuð hraður og skemmtilegur og hart tekist á. Norðanmenn spiluðu þó sýnu harðari leik og af miklum ákafa sem skilaði þeim næstum því jafntefli. Þeir þurfa þó að passa sig að ganga ekki of langt, einsog með stórhættulegum bakhrindingum upp við batta – slíkt á ekki að sjást, eitthvað sem allir þjálfarar verða að útskýra fyrir leikmönnum. Það gladdi augað að sjá hversu vel Anna í liði SA spjarar sig, gefur strákunum lítið eftir. Mörk SR skoruðu Úlfar (2), Andri Kristinn (1) og Jón Þröstur (19). Mörk SA skoruðu Elmar (2) og Anna (1).