Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn í Egilshöll

Dags: 16.01.2004 16:06


Í gærkvöldi áttust við í Egilshöll SR og Björninn í Íslandsmóti karla. Þetta var fyrsti opinberi leikur þessara liða í karlaflokki í Egilshöll og því stór stund fyrir íslenskt íshokkí. Leikurinn var bráðfjörugur og mjög spennandi, þar sem liðin skiptust á að taka forystu en svo fór að leikurinn endaði með jafntefli, 6-6. Leikurinn fór að mestu leyti prúðmannlega fram þar sem íshokkíið réð ferðinni. Frammistaða SR-inga olli þó nokkrum vonbrigðum, og þá sérstaklega vörnin, á meðan sóknartilburðir voru góðir. Í fyrstu lotu spiluðu SR-ingar mjög vel og fengu fjölmörg dauðafæri sem nýttust þó ekki. Svo fór að halla undan fæti og gengi SR skrykkjótt í annarri og þriðju lotu, á meðan Björninn nýtti vel þau tækifæri sem þeir fengu. Úrslit leiksins því nokkuð sanngjörn.

Erfitt er að tína til e-n sérstakan leikmann í SR sem var öðrum fremri, nema þá helst Ingvars fyrirliða og Jasons Selkirks. Þá gladdi augað markaskorun Guðmundar Björgvinssonar sem skoraði tvö mörk. Hjá Birninum var Sergei Zak yfirburðamaður, oft hreinlega óstöðvandi, og markvarsla Birgis á köflum frábær.
Nánari upplýsingar um tölfræði leiksins má nálgast hér.