Dags: 13.01.2004 20:19
Það er óhætt að segja að Skautaskóli íshokkídeildar SR, undir stjórn Helga Páls Þórissonar skautakennara, hafi slegið rækilega í gegn í vetur. Nú þegar hafa margir klárað skólann og hafið íshokkíþjálfun hjá félaginu, og margir eru á leiðinni. Eftir áramót bættist fjöldi nýrra nemenda í hópinn. Það er greinilegt að mikil þörf var á þessu framtaki en þetta er annað árið sem félagið stendur fyrir Skautaskólanum. Þar sem svo mjög hefur fjölgað í hópnum viljum við benda nýjum félögum á Skiptimarkaðinn á heimasíðunni, þar sem oft má finna ódýran íshokkíútbúnað.