Fréttir

Total items: 1194

Óvænt úrslit í 3. flokki!

Dags: 12.01.2004 17:52


Strax að leik meistaraflokks loknum á Akureyri áttust við SR og SA í þriðja flokki í Íslandsmótinu. Eitthvað virtust SR-ingar hafa vanmetið andstæðinginn, enda átt fremur létt hingað til með að leggja þá að velli, því SA komst í 3-0 áður en SR tókst að svara fyrir sig. Leikurinn fór fram að mestu leyti í varnarsvæði SA, skotin buldu á markamanni þeirra án þess að pökkurinn færi inn. Á sama tíma átti SA varla skot á mark SR. Leikurinn stefndi í mikið óefni fyrir SR en þeir náðu þó að klóra í bakkann og jafna 4-4 áður en yfir lauk. Þessi leikur kennir okkar drengjum að það þarf að halda athyglinni og baráttunni allan leikinn. Eins er óhætt að fullyrða að SA-ingar hafa eflst í þessum flokki og baráttugleði þeirra er mikil. Mörk SR skoruðu Þorsteinn (1), Úlfar (1), Jón Þröstur (1) og Sandri (1).