Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn í 2. fl

Dags: 09.01.2004 22:14


Í gærkveldi lék SR við Björninn í 2. fl. í Íslandsmótinu. Innbyrðisleikir þessara flokka í haust hafa verið mjög jafnir og spennandi, og svo varð raunin einnig núna. Björninn vann 5-4 í leik sem var mjög kaflaskiptur. SR-ingar voru ákaflega daufir í fyrsta leikhluta, lentu undir 0-2, en náðu að bíta frá sér í öðrum hluta og jafna. Í upphafi þriðja leikhluta komst Björninn í 5-3, eftir sofandahátt í vörninni, en náðu svo að klóra í bakkann, 5-4. Hjá SR var Gauti Þormóðsson einna atkvæðamestur en Birgir Hansen hjá Birninum.

Mörk SR gerðu Gauti Þormóðsson (2), Úlfar Andrésson (1) og Þorsteinn Björnsson (1).