Dags: 06.01.2004 19:48
Um næstu helgi leikur SR við SA í Mfl og í 3. flokki í Íslandsmótinu. Leikirnir fara fram á Akureyri á laugardeginum og hefst leikur Mfl kl 17:00 en leikur 3. flokks kl. 21:00. Þessir leikir eru ávallt skemmtilegir á að horfa en Akureyringarnir eru jafnan erfiðir heim að sækja. Enn eru nokkur sæti laus í SR-rútunni fyrir stuðningsfólk en lagt verður af stað norður kl. 10:00 á laugardagsmorgni og komið heim aðfararnótt sunnudags. Þeir sem hafa áhuga á að skella sér með norður með liðunum hafi samband við Óla í síma 864-1243.