Dags: 29.12.2003 19:03
Í kvöld verður æfing hjá Meistaraflokki, 2. og 3. flokki, og byrjar ísæfing kl.20:00. Þeir sem ætla að mæta og byrja á því að hita upp og brenna örlitlu af jólasteikinni er ráðlegt að mæta uppúr kl.19:00.
Það er ekki von á öðru en að menn verði vel í stakk búnir nú þegar þeir eru búnir að byrgja sig upp af orku úr öllu jólakonfektinu, Malt og Appelsíni og síðan en ekki síst þeirri gríðarlegu steik sem mæður eru orðnar frægar fyrir. ATH þetta er síðasta æfingin á árinu!