Liðstjórar
» Prenta út þessa síðu
Eftir taldir foreldrar eru liðstjórar 2004 - 2005:
Hver flokkur hefur 3 liðstjóra sem skipta með sér verkum. Reynt er að hafa einn liðstjóra á hverri æfingu og í hverjum leik. Hlutverk m.a:
- Fylgjast með hegðun inn í klefa og á bekkjum og grípa inn í ef þörf er á
- Upplýsa aðalþjálfara um atvik ef þurfa þykir
- Aðstoða þjálfara við þau verkefni er tengjast flokknum og hann biður um
- Sjá um að dreifimiðar og aðrar upplýsingar frá þjálfara eða stjórn komist til skila til allra leikmanna
- Hafa samband við foreldra og reyna að virkja þá eftir bestu getu í þágu flokksins
- Skipuleggja að allir séu í treyjum; ef SR treyjur eru notaðar sjá þá um að koma með þær í leiki.
- Sjá um allar viðgerðir á hjálmum/útbúnaði ef þörf krefur á leikjum eða á æfingum
- Sjá um að skipuleggja tiltektir í búningsklefa eftir æfingar/leiki Skipuleggja ferðir til Akureyrar í Íslandsmótinu (3.fl.)
- Skipuleggja ferðir á Brynjumót og Íslandsmót (4./5./6./7.fl.)
- Skipuleggja félagsstarf flokksins utan æfinga (skemmtikvöld o.s.frv. fyrir samheldnina)