MFL-Dagatal

Sjóðheitir á ísnum

 Einn af öðrum ryðjast þeir fram á ísinn; stæltir, sveittir og sjóðheitir. Þeir hafa lagt mikið á sig í vetur, náð gríðarlega góðum árangri í því sem þeir eru bestir: Að leika saman íshokkí sem ein heild undir merkjum eins elsta íþróttafélags landsins, Skautafélags Reykjavíkur.

Undir þungum keppnisbúningunum sem nauðsynlegir eru til að verja þá í harðri baráttunni við keppinautana á ísnum, leynast stinnir skrokkarnir. Þrautþjálfaðir vöðvar og einskær einbeiting mun skila strákunum í meistaraflokki SR titlinum í ár: Þeir  verða Íslandsmeistarar!

Nú gefst æstum aðdáendum í fyrsta skipti og kannski það eina, tækifæri til að sjá þessar eldheitu hetjur í nýju ljósi: Eina kvöldstund í vetur fækkuðu þeir fötum á ísnum og sýndu það sem undir brynjunum býr.  Þessi dulmagnaða kvöldstund var fest á filmu vegna fjölda áskorana frá kvenþjóðinni. Afraksturinn hefur nú verið gefinn út í glæsilegu dagatali. Hagnaðinn af sölunni ætla strákarnir að nota til keppnisferðalaga en fjárhagur Skautafélags Reykjavíkur er nú mjög þröngur stakkur sniðinn.

Framlag þitt skiptir máli!  Keyptu dagatal af sjóðheitum strákum á ís, gefðu vinkonu, systur eða móður og styrktu gott málefni í leiðinni.

Dagatalið er selt á skrifstofu SR í Skautahöll Reykjavíkur og kostar aðeins 1.000 krónur.

Ef þú vilt fá dagatalið sent í tölvupóst þá sendir þú tölvupóst á netfangið dagatal@skautafelag.is með nafni, heimilisfangi og póstnúmeri.  Þú getur millifært 1200 kr (1000 kr dagtal + 200 póstkostnaður) inná 0101-26-22309  (Landsbankinn, Austurstræti) k.t. 561092-2309 með tilvísuninni "Dagatal MFL" og sendir greiðslukvittun á netfangið dagatal@skautafelag.is.  Ef það á að fá dagatalið í póstkröfu þá þarf að tilgreina það sérstaklega.

Einnig er hægt að nálgast dagatalið í verslunum 10-11 í Glæsibæ, Lágmúla og í Laugarlæk.