
Taktu laugardagskvöldið 2.maí frá því að þá verður SR Árshátið 2009. Farið verður yfir árið í máli og myndum og einhverjar kræsingar verða á boðstólum.
Auðvitað verða einhver skemmtiatriði einsog vera ber.
Staðsetning: Iðusalir, Lækjargötu 2a - Iðuhúsinu og hefst kl.18:00 kl.19:00 (húsið opnar).
Sjá vef Iðusala -> www.idusalir.is
Miðaverð er: 6000 kr per manninn - þriggja rétta matseðill + skemmtiatriði + dans í lok dagskrár.
Dagskrá (í grófum dráttum)
Matseðillinn:
Forréttur: Villisveppa súpa ásamt brauð
Aðalréttur skorinn fyrir í sal:
Hosingljáðar grísalundir
Nautafillet
með kartöfluteningum og rótargrænmeti og tvær tegundir sósum
Eftirréttur:
Súkkulaðikaka með jarðaberjatartar, kókosís, vanillu froðu
og jarðaberja coulis
Allar spurningar og miðapantanir skulu berast til Helga P í netfangið helgipall@skautafelag.is eða í síma 861 4939.
Ef þú lesandi góður hefur áhuga á að koma með skemmtiatriði þá getur þú sent póst á helgipall@skautafelag.is og lýst því í stuttu máli.