
Mun SR ná að halda dampi gegn SA um helgina ?
Eftir góðan sigur í Egilshöll fyrr í vikunni eru SR-ingar í óða önn að
undirbúa sig fyrir átök helginarinnar. Það er alveg ljóst að
Akureyringar koma með sitt besta lið til Reykjavíkur og ætla sér án efa
sigur. SR-ingar hafa æft vel undanfarnar vikur og hefur aðaláherslan
verið á stífan og ákveðin varnarleik, snarpar og beittar sóknir. Það
er ekki ólíklegt að Daneil Kolar, þeim sem myndin er af hér að ofan,
fari mikinn í leik sínum undir stjórn Richards Tahtinen.
Fyrsti leikur liðanna er í kvöld kl.21:00 og seinni leikurinn verður á
laugardagskvöldið kl.18:00. Síðar á laugardagskvöldið mun 3.flokkur
þessara liða einnig eigast við beint eftir meistaraflokksleikinn.
Einnig um helgina varða æfinga leikir hjá 7-6-5 og 4 flokki á milli SR og Bjarnarins. Sumsé pökkuð helgi.
Skiptimarkaður
Á laugardagin verður skiptimarkaður í samkomusalnum í Skautahöllinni í
Laugardalnum. Þar kennir ýmissa grasa og er rakið dæmi að fara þangað
ef vantar íshokkíbúnað á góðu verði eða skipta út búnaði sem vantar.
Hvað segir Richard ?
Á vef íshokkídeildarinnar www.skautafelag.is/ishokki
er skemmtilegt greinasafn þar sem aðalþjálfari íshokkídeildarinnar,
Richard Tahtinen, skrifar nokkuð reglulega. Þetta gefur félagsmönnum
innsýn inní hugarheim þjálfarans.