Fréttir

Total items: 1194

Og þá hefst nýtt tímabil ....

Dags: 02.09.2002 08:51


Stjórn íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur býður alla iðkendur og félaga velkomna til æfinga og keppni fyrir tímabilið 2002 – 2003 en æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu í dag, mánudaginn 2. september. Nýjir félagar eru velkomnir og mæta þeir skv. æfingatöflu (sjá "Æfingar"). Við viljum ennfremur bjóða foreldra velkomna til að starfa með félaginu í vetur en nú þegar er töluvert stór hópur foreldra þátttakandi í ýmsum hópum á vegum þess. Fundur með foreldrum, þar sem starf og áherslur vetrarins verða kynntar, verður haldinn fljótlega og verður hann auglýstur síðar. Íshokkídeildin mun auk þess regulega birta tilkynningar og fréttir um starf vetrarins á þessum vef og hvetjum við því alla til að nýta þessa vefsíðu.