Dags: 29.08.2002 10:19
Ráðinn hefur verið nýr aðalþjálfari deildarinnar, Svíinn Peter Bolin. Hann hefur bæði mikla reynslu sem þjálfari og sem leikmaður. Auk þess er hann vel menntaður og með mikla reynslu af margskonar barna- og unglingastarfi og bindum við því miklar vonir við hann. Við viljum bjóða hann hjartanlega velkominn í okkar raðir. Peter til aðstoðar í vetur verða okkar menn, m.a. þeir Ágúst, Helgi Páll og Guðmundur Ragnar.