Fréttir

Total items: 1194

Skautanámskeið fyrir byrjendur

Dags: 29.08.2002 22:58


Íshokkýdeild SR mun í haust gangast fyrir skautanámskeiðum fyrir börn. Fyrsta námskeiðið hefst miðvikudaginn 4. september kl. 15:15 í Skautahöllinni (mæting kl. 15:00). Hægt er að skrá þátttöku í netfangið sr@skautafelag.is eða í síma 847 6865. Áhugasamir þátttakendur geta í framhaldi af þessu námskeiði tekið fullan þátt í æfingum á vegum íshokkýdeildarinnar skv. æfingatöflu deildarinnar.