Dags: 02.09.2002 08:48
Skautahöllin í Laugardal var opnuð fyrir almenning núna í dag kl.13:00. Þónokkur fjöldi var mættur til þess að renna sér á skautum. Endaþótt skautahöllin hafi opnað fyrir almennig í dag þá hefur verið mikið og líflegt starf í höllinni síðan í byrjun ágúst. Skautaskólinn í Reykjavík var með íshokkínámskeið sem voru vel sótt, en þá tóku við listhlaupaæfingabúðir.