Dags: 10.09.2002 11:59
Íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur mun halda hinn árlega skiptimarkað deildarinnar sunnudaginn 15. september, frá kl. 18:00 – 20:00 í fundarsal Skautahallarinnar. Á þessum markaði gefst fólki kostur á að selja gamlan eða lítið notaðan íshokkíútbúnað sem ekki er lengur í notkun, eða að eignast slíkan útbúnað í stað þess að kaupa nýjan og mun dýrari. Við hvetjum eindregið félagsmenn, sérstaklega foreldra byrjenda, til að nýta sér þetta tækifæri - þeir sem ætla að selja útbúnað mæti kl. 17:30.