Fréttir

Total items: 1194

Skemmtilegir æfingaleikir um helgina.

Dags: 17.09.2002 12:57


3flokkurleikur.jpg

Núna um helgina voru spilaðir æfingaleikir í 3.flokki og í meistaraflokki gegn Birninum.
3.flokks leikurinn var á laugardaginn og endaði hann 7 - 2 fyrir SR. Leikurinn var spennandi og skemmtilegur á að horfa og komu fram skemmtilegar leikfléttur frá okkar mönnum. Undir lok síðustu leiklotu var einsog okkar menn hefðu hætt að skauta enda ekki mikil ástæða til þess að æsa sig í þessum leik.
Meistaraflokksleikurinn var einnig allt annað en leiðinlegur. Menn voru komnir til þess að taka á þvi og það var svo sannarlega gert. Okkar menn voru staðráðnir í því að láta ekki valta yfir sig. Ekki leit það vel út eftir fyrsta leikhluta þegar staðan var orðin 3 - 1 fyrir Bjarnarmönnum. SR maskínan var sein í gang, einsog svo oft áður, en kom sterk inn í öðrum leikhluta og skoraði tvö mörk á móti einu Bjarnarmanna - staðan orðinn 4 - 3 gestum í vil. Nú var að að duga eða drepast fyrir SR í þessum fyrsta æfingaleik liðanna fyrir deildarkeppnina. SR-ingar komu sáu og sigruðu í síðasta leikhlutanum og unnu 7 - 5. Var þessi leikur spennandi og hraður með tilþrifamiklum mörkum og tilheyrandi tæklingum.
Nokkuð var um að menn fengu að fara í boxið og stundum var orðið ansi þröngt á þingi í boxinu hjá SR-ingum og er það hlutur sem þarf að laga fyrir komandi leiki. Búið er að finna leynivopn vetrarins hjá SR og eru það djúníorarnir sem þarna léku sína fyrstu leiki með meistaraflokki. Sagt er að þeir hafi skorað allt að helminginn af mörkunum. Það er nokkuð ljóst að Steinsen-tvíbbarnir ásamt Gauta og Ingó, eiga eftir að láta að sér kveða í vetur. Tveir sturtudómar voru gefnir í þessu leik. Dómgæslan var ágæt endaþótt að leikmönnum fyndist fullmikið flautað í leiknum. En hvað um það, þetta var æfingaleikur fyrir alla, leikmenn, dómara og starfsfólk á leikjum. Næsti leikur liðanna er næstkomandi laugardag kl.20:00.